Stjarnan komst á topp Mikasadeildar karla á fimmtudaginn með góðum útisigri á HK, 3-1.
Stjörnumenn mættu einbeittir til leiks í Fagralund og unnu fyrstu hrinuna 25-18. Allt virtist stefna í spennandi leik þegar HK ingar jöfnuðu metin í hrinum með sigri í annarri hrinunni 25-18. Það kom á daginn og þriðja hrinan endaði öll í hnút. Stjarnan hafði þó betur í lokin, 26-24 og með aðra höndina á leiknum.
Eitthvað virtist þriðja hrinan sitja lengur í HK því liðið beið lægri hlut fyrir frískum Stjörnumönnum 25-17 í fjórðu hrinunni og unnu Garðbæingar því mikilvægan sigur í baráttunni um Mi...