HEKLUMÓT STJÖRNUNNARÞað var heldur betur líf og fjör í Hekluhöllinni um helgina þegar Heklumót Stjörnunnar í handbolta fór fram. Einnig spiluðu meistaraflokkar félagsins þrjá leiki, þar sem karlaliðið spilaði tvo leiki og kvennaliðið einn. Höllin var því full af lífi, hraða og spennu frá morgni til kvölds. Heklumótið heppnaðist afar vel og var mikil ánægja með mótið og fjölmargar framtíðarhandboltastelpur gerðu sér ferð til okkar. Stemming var frábær á mótinu sem og á leikjum meistaraflokkana, þar sem áhorfendur studdu vel við bakið á liðunum. Að lokum viljum við þakka öllum sem komu að skipulagningu mótsins, þátttakendum og áhorfendum fyrir frábæra helgi í Hekluhöllinni, að auki allra sjálfboðaliða sem aðstoða viðuppsetningu á heimaleikjum meistaraflokkana. Án sjálfboðaliða væri ekki hægt að halda úti því frábæra starfi sem er gert í handboltanum. SKÍNI STJARNAN
|