ÚRSLITAKEPPNIN HANDAN VIÐ HORNIÐ!
Nú fer spennan að ná hámarki þar sem bæði meistaraflokkslið Stjörnunnar eru á leið inn í úrslitakeppnina eftir krefjandi og skemmtilegt tímabil. Þó að #veðrið gangi nú yfir þá er úrslitakeppnin í körfu vorboðinn ljúfi, lóan sem kemur til að kveða burt snjóinn. Undir lok tímabilsins varð liðið þó fyrir áfalli þegar bandaríski leikmaðurinn Ruth Sherrill meiddist og verður frá keppni. Meistaraflokkur kvenna endaði í 8. sæti deildarinnar og mætir sterku liði Hauka fyrstu umferð. Verkefnið er krefjandi en alls ekki óyfirstíganlegt og liðið hefur sýnt það í vetur að það getur staðið upp í hárinu á bestu liðum landsins. Haukar eru reynslumiklar, ríkjandi Íslandsmeistarar en okkar lið er með mikið af efnilegum stelpum sem vilja sýna sig á þessu sviði. Leikjadagskráin í einvíginu er eftirfarandi. Við ætlum að skapa góða stemmningu og stelpurnar ætla sér áfram úr einvíginu Leikur 1 – 30. mars kl. 19:30 (Ásvellir) Leikur 2 – 3. apríl kl. 19:30 (ÞG Verk höllin) Leikur 3 – 8. apríl kl. 19:30 (Ásvellir) Leikur 4 – 12. apríl kl. 19:30 (ÞG Verk höllin) ef með þarf Leikur 5 – 16. apríl kl. 19:30 (Ásvellir) ef með þarf
Meistaraflokkur karla kemur inn í úrslitakeppnina á góðu skriði. Tveir af okkar leikmönnum fengu verðlaun fyrir tímabilið. Orri Gunnarsson og Ægir Þór Steinarsson voru í fimm manna úrvalsliði deildarinnar og Ægir var einnig valinn varnarmaður ársins. Síðasti leikur þeirra fór fram í gær gegn nágrönnum okkar á Álftanesi þar sem Stjarnan tapaði eftir skemmtilegan leik og endaði liðið deildarkeppnina í þriðja sæti, sem er gott eftir brösuga byrjun í haust. Liðið er þrátt fyrir tapið í góðum gír og klárt í baráttuna. Strákarnir hefja sína úrslitakeppni á miðvikudaginn þegar þeir taka á móti KR í ÞG Verk höllinni. Útlit er fyrir frábæra seríu á milli tveggja góðra liða. Þó að okkar menn hafi endað hærra í töflunni þá eru KR með frábært lið sem t.d. Er ríkjandi bikarmeistari og auðvitað mikla hefð og sögu. Svona líta leikdagarnir út. Leikur 1 – 1. apríl 19:30 (ÞG Verk höllin) Leikur 2 – 6. apríl 19:30 (Meistaravellir) Leikur 3 – 10. apríl 19:30 (ÞG Verk höllin) Leikur 4 – 14. apríl 19:30 (Meistaravellir) *ef með þarf Leikur 5 – 18. apríl 19:30 (ÞG Verk höllin) *ef með þarf Stjörnufólk þekkir stemmninguna sem framundan er, þar viljum við vera. Til að það hafist þurfa okkar lið stuðning, náum við honum getur allt gerst.
Miðasala í tengslum við úrslitakeppnina verður með öðru sniði en á leikjunum í vetur. Allar nánari upplýsingar um framkvæmd miðasölu verður á Facebook síðu körfuboltans. Færri miðar verða í boði en í fyrra á leikina, og má því vænta að uppselt verði á einhverja leiki, sem og miðaverð verður hærra en í vetur og munu allir þurfa að borga sig inn á leikina, óháð aldri. Fyrir fyrstu heimaleikina mun upphitun byrja fyrr. Þangað munu mæta spekingar sem munu fara yfir úrslitakeppnina, spá í spilin og sjá hverjir möguleikar Stjörnunnar eru á móti sýnum andstæðingum. Þessir viðburðir verða auglýstir sérstaklega. Sjáumst á vellinum. Skíni Stjarnan!
|