|
Súpufundur stuðningsmanna fer fram næstkomandi mánudag, 16. mars. Á fundinum gefst stuðningsmönnum Stjörnunnar tækifæri til að fá innsýn í undirbúning beggja liða fyrir komandi tímabil. Þeir Jökull og Óskar mæta á svæðið, fara yfir undirbúningstímabilið, hvað er framundan og svara spurningum úr sal. Á boðstólnum verður hin fræga kjötsúpa frá vinum okkar hjá Icelandic Street Food, ásamt plokkfiski – fullkomið til að hita upp fyrir spennandi tímabil. Sætapláss er takmarkað og skráning er hafin. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á midasala@stjarnan.is.
Við hlökkum til spennandi tímabils þar sem liðin okkar munu keppa í efstu deild og við vitum að stuðningurinn úr stúkunni skiptir miklu máli. Með því að tryggja þér árskort styður þú við félagið og verður hluti af þeirri stemningu sem gerir heimaleiki okkar að sérstökum viðburði. Við hvetjum alla stuðningsmenn til að tryggja sér árskort fyrir tímabilið og mæta á völlinn í sumar til að styðja við liðin okkar í Bestu deild karla og kvenna.
Stuðningsmannakvöldið fer fram föstudaginn 27. mars, þar sem leikmenn meistaraflokks mæta á grillið og taka á móti stuðningsmönnum. Tökum daginn frá, fjölmennum og þéttum raðirnar fyrir komandi átök í sumar.
SKÍNI STJARNAN!
|