ÁRSSKÝRSLA STJÖRNUNNAR 2025
AÐALFUNDUR UMF STJÖRNUNNAR 16. APRÍL 2026
STARFSÁR 2025
ÁVARP FORMANNS
SKÝRSLA AÐALSTJÓRNAR
Í knattspyrnunni endaði meistaraflokkur karla í 3. sæti Bestu deildar karla og náði þessu mikilvæga Evrópusæti, meistaraflokkur kvenna byrjaði frekar illa en náði sér svo vel á strik og endaði í 4. sæti Bestu deildar kvenna. Heildarfjöldi iðkenda í knattspyrnudeild eru yfir 1200.
Í handboltanum fór meistaraflokkur karla alla leið í bikarúrslitin og spiluðu frábæran úrslitaleik við Fram sem tapaðist naumlega. Strákarnir tóku þátt í Evrópukeppni í haust og duttu út gegn rúmensku liði í vítakeppni. Meistaraflokkur kvenna átti erfitt ár en hélt sér í efstu deild. Heildarfjöldi iðkenda í handknattsleiksdeild eru um 450.
Í körfuboltanum var stór stund á árinu. Meistaraflokkur karla varð Íslandsmeistari. Þá lauk glæsilegum ferli Hlyns Bæringssonar með þessum skemmtilega íslandsmeistaratitli og vil ég þakka honum fyrir hans framlag til félagsins sem iðkanda, en treyja hans hefur verið hengd upp í Ásgarði við hliðina á treyju Justin Shouse. Stelpurnar náðu ekki að fylgja eftir frábærum árangri frá árinu áður en nú í haust hafa þær komið sterkar til leiks með enn fleirri stelpum úr yngri flokkum félagsins. Heildarfjöldi iðkenda í körfuknattsleik eru um 560.
Fimleikadeildin er næst stæðsta deildin á eftir knattspyrnudeildinni með u.þ.b. 750 iðkendur. Árangurinn þar var góður, við urðum Íslands- og bikarmeistarar í meistaraflokki kvenna, karla og blönduðum hópi. Stjarnan var auk þess fyrsta íslenska liðið að vera með keppnislið karla, kvenna og blandað lið á Norðurlandamóti og þar náði meistaraflokkur kvenna þeim glæsilega árangri að verða í 2. sæti í heildarkeppninni og efstar í dansi. Fimleikadeildin er jafnframt með áhaldafimleika og gengur starfið vel þar.
Kraftlyftingafólkið okkar náði jafnframt góðum árangri á árinu eins og undanfarin ár. Deildin átti keppendur á öllum meistaramótum Kraftlyftingasambands Íslands og voru þau fjölmörg gullin sem komu þar í hús á innanlandsmótunum. Í deildinni er stöðugur vöxtur iðkenda og eru nú skráðir 171 í kraftlyftingadeildina.
Í sundinu erum við með yfir 100 iðkendur þar sem öll áhersla er á barna- og unglingastarfið.
Í almenningsíþróttunum erum við með yfir 150 iðkendur og um 90 iðkendur í hlaupahópnum.
Stjarnan er ákaflega stolt af því mikilvæga hlutverki sem félagið gegnir í samfélaginu okkar í Garðabæ. Félagið er meðal stærstu þjónustuaðila í bæjarfélaginu og er hlutverk þess þríþætt: • Barna- og unglingastarf • Afreksstarf • Almenningsíþróttir fyrir fullorðna. Í barna- og unglingastarfinu er hugsjónin fyrst og fremst að skila út í samfélagið sterkum einstaklingum sem læra í gegnum íþróttirnar að takast á við gleði og sorgir, sigra og töp, meðbyr og mótlæti. Ekki má heldur gleyma því mikla forvarnargildi sem þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi hefur. Slík þátttaka, ásamt samvistum við forráðamenn og fjölskyldu, eru tveir stórir þættir sem hafa áhrif til góðs þegar litið er til áhættuhegðunar barna og ungmenna. Afar mikilvægt er að halda ótrauð áfram á braut forvarna og hlúa enn betur að því starfi sem unnið er á þessu sviði. Sérstaklega þarf að koma í veg fyrir brottfall á unglingsaldri.
Í afreksstarfi er Stjarnan í fremstu röð eins og fram hefur komið. Auk þeirrar sigurhefðar, skemmtanagildis, samstöðu og félagslegrar samveru sem afreksstarfið elur af sér er eitt af stóru hlutverkum afreksstarfsins að skapa fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur. Ómetanlegt er að eiga sterkar fyrirmyndir og óhætt er að fullyrða að í Stjörnunni eigum við fjöldann allan af slíkum sem við öll, börn og fullorðnir, getum stolt litið upp til. Samstaðan sem myndast í kringum afreksfólkið okkar á stóran þátt í að þjappa okkur saman og við finnum fyrir því að tilheyra stærri heild.
Skíni Stjarnan!
Fyrir hönd aðalstjórnar Stjörnunnar,
Sigurður Guðmundsson, formaður aðalstjórnar
Á starfsárinu 2025 tóku ríflega 4.000 virkir iðkendur og yfir 400 þjálfarar og aðrir starfsmenn þátt í starfsemi félagsins, að ógleymdum þeim mikla fjölda sjálfboðaliða sem situr í stjórnum deilda, ráðum og nefndum, eða kemur að starfinu á annan hátt. Hjá félaginu eru sem fyrr starfandi sjö deildir: fimleika-, handknattleiks-, knattspyrnu-, körfuknattleiks-, lyftinga-, sund- og almenningsíþróttadeild. Félagið er fjölmennasta félag landsins þegar horft er til fjölda iðkana og eru iðkanir hjá félaginu rúmlega 6.500.
Þann 10. janúar sl. fékk Stjarnan viðurkenningu frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands að félagið og einstakar deildir þess séu fyrirmyndarfélag ÍSÍ, það er mikilvægt fyrir félagið að fá slíka staðfestingu reglulega. Að vera fyrirmyndarfélag ÍSÍ þýðir að Stjarnan starfi eftir skýrum gæðaviðmiðum sem eiga að tryggja heilbrigt, faglegt og uppbyggilegt íþróttastarf, sérstaklega fyrir börn og ungmenni.
Í stuttu máli er fyrirmyndarfélag félag sem gerir hlutina rétt – bæði innan vallar og utan.
Almennt má segja að árið 2025 hafi verið gott fyrir Stjörnuna.
STARFSEMI UMF STJÖRNUNNAR
Fjöldi virkra iðkenda í barna- og unglingastarfi félagsins starfsárið 2025 til vors 2026 er ríflega 4.000. Líkt og kom fram í skýrslu aðalstjórnar hér að framan, þessir 4.000 iðkendur iðka rúmlega 6.500 iðkanir.
Iðkendafjöldi hefur haldist stöðugur í flestum deildum félagsins á milli ára og er það vel. Knattspyrnudeild félagsins er stærsta deild félagsins en fimleikadeildin fylgir þar fast á eftir. Hér fyrir neðan/til hliðar er mynd sem sýnir hlutfallslega skiptingu iðkenda á milli deilda félagsins.
FJÖLDI IÐKENDA
Sumarstarfsemi félagsins tókst einstaklega vel á síðasta ári þar sem góður kraftur var settur í starfið en félagið býður upp á sérstök námskeið yfir sumarið sem ekki falla undir hefðbundnar æfingar flokka félagsins. Námskeiðin hafa verið vel sótt af bæði iðkendum Stjörnunnar og öðrum krökkum sveitarfélagsins og fjölbreytileikinn alltaf að verða meiri fyrir alla hópa en á sumrin gefst oft tími til að bjóða upp á sérhæfðari námskeið sem ekki komast að yfir vetrarmánuðina.
Alls tóku um 1.273 krakkar þátt í þeim námskeiðum sem voru í boði. Hér fyrir neðan/til hliðar er hægt að skoða skiptingu þeirra eftir deildum frekar.
SUMARNÁMSKEIÐ
ÞJÁLFARI ÁRSINS 2025
Baldur Þór stýrði Stjörnunni til Íslandsmeistaratitils á árinu 2025 eftir ótrúlega úrslitakeppni og hreinan úrslitaleik á Sauðárkróki í maí. Baldur sem áður hafði þjálfað í Þýskalandi við góðan orðstír kom með nýja nálgun og ferska vinda á leik Stjörnumanna og átti stóran þátt í titlinum sem var langþráður.
Baldur var einnig í þjálfarateymi íslenska landsliðsins á árinu, eftir góða undankeppni tryggði liðið sig inná Eurobasket 2025.
BALDUR ÞÓR RAGNARSSON
LÖG UMF STJÖRNUNNAR
1. gr.
Heiti.
Félagið heitir Ungmennafélagið Stjarnan, skammstafað U.M.F. Stjarnan. Starfssvæði U.M.F. Stjörnunnar er Garðabær.
2. gr.
Markmið.
Tilgangur félagsins er að efla og útbreiða líkams- og heilsurækt í formi keppnis- og almenningsíþrótta hjá öllum aldurshópum í Garðabæ. Enn fremur að efla samkennd bæjarbúa með virkri þátttöku í íþrótta- og félagsstarfi.
3. gr.
Aðili að heildarsamtökum.
Félagið er aðili að UMSK, UMFÍ, ÍSÍ og sérsamböndum þess, eftir því sem við á hverju sinni
4. gr.
Félagar, félagaskrá og félagsgjöld.
Félagið er myndað af einstaklingum í íþróttadeildum, sem hafa sameiginlega aðalstjórn.
Aðalstjórn skipar deildarstjórnir og fer með æðsta vald félagsins milli aðalfunda. Félagi getur hver sá orðið, sem skráður er í félagið og greiðir félags- eða æfingagjald til þess. Úrsögn úr félaginu skal tilkynnt aðalstjórn.
5. gr.
Ársreikningur.
Semja skal ársreikning fyrir aðalstjórn U.M.F. Stjörnunnar og einstakar deildir félagsins. Hver deild skal annars vegar gera upp rekstur barna- og unglingastarfs og hins vegar rekstur keppnisíþrótta fyrir 18 ára og eldri. Jafnframt skal semja samstæðureikning fyrir U.M.F. Stjörnuna.
Ársreikningurinn skal gerður samkvæmt lögum, reglum og góðri reikningsskilavenju. Hann skal sýna yfirlit um rekstur og framkvæmdir á reikningsárinu og efnahagsreikning í lok reikningsárs ásamt skýringum. Í ársreikningi skal koma fram yfirlit um fjárhagslegar skuldbindingar félagsins.
Ráðinn skal löggiltur endurskoðandi eða endurskoðendafélag til þess að yfirfara og árita ársreikninginn í samræmi við lög og reglur og góðar skoðunarvenjur. Með endurskoðun sinni skal endurskoðandi félagsins komast að rökstuddri niðurstöðu um áreiðanleika ársreiknings og ganga úr skugga um að fylgt hafi verð ákvæðum laga, reglna og samþykkta um meðferð fjármuna.
Reikningsár félagsins er frá 1. janúar til 31. desember ár hvert.
6. gr.
Aðalstjórn.
Aðalstjórn U.M.F. Stjörnunnar fer með stjórn félagsins samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Aðalstjórn skal skipuð fimm aðilum, formanni, varaformanni, og þremur meðstjórnendum, ásamt tveimur varamönnum. Aðalstjórn skal kosin á aðalfundi félagsins og skal formaður kosinn sérstaklega. Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar kýs hún sér varaformann og skipar fjárhagsráð sem í eiga sæti formaður, varaformaður og einn fulltrúi kosinn af stjórn.
Stjórnarmenn í aðalstjórn eiga að uppfylla eftirfarandi skilyrði.
a. Að vera fjár síns ráðandi og hafa óflekkað mannorð.
b. Að hafa fjölhæfa þekkingu, menntun og reynslu, sem nauðsyn þykir til að stýra U.M.F Stjörnunni.
c. Að hafa ávallt hafa hagsmuni félagsins að leiðarljósi í öllum sínum störfum.
7. gr.
Verkefni aðalstjórnar.
Aðalstjórn ber að samræma starfsemi félagsins, vinna að eflingu þess og gæta hagsmuna þess í hvívetna. Aðalstjórn er málsvari félagsins út á við og skýrir sjónarmið þess á þeim vettvangi.
Aðalstjórn ákveður félagsgjöld í upphafi starfstímabils og heldur skrá yfir alla félagsmenn.
Aðalstjórn skal skipa trúnaðarmenn félagsins og þær nefndir sem hún telur nauðsynlegar hverju sinni. Aðalstjórn er heimilt að víkja félagsmönnum úr félaginu og setja leikmenn í keppnisbann álíti hún framkomu þeirra vítaverða og brjóta í bága við anda íþróttahreyfingarinnar. Sjóði félagsins skal ávaxta í viðurkenndum innlánsstofnunum. Aðalstjórn skal halda stjórnarfundi að jafnaði 10 sinnum á ári, eða oftar ef þurfa þykir. Halda skal um þá sérstaka gerðabók. Heimilt er að færa fundargerð í tölvu og undirrita með rafrænni undirritun. Fundargerðir sem færðar eru í tölvu skulu færðar inn í gerðabók eftir að þær hafa verið undirritaðar.
Enga fullnaðarákvörðun getur aðalstjórn tekið nema með samþykki meirihluta stjórnarmanna.
Tillaga að samþykkt sem lögð er fram á fundi aðalstjórnar þarf að hafa legið fyrir í fundarboði og verið kynnt stjórnarmönnum eigi hún að koma til afgreiðslu Þó skal heimilt að taka tillögu til afgreiðslu með samþykki allra stjórnarmanna.
Aðalstjórn hefur umráðarétt yfir eignum félagsins og ræður starfsemi þess. Aðalstjórn skal hafa umsjón með stofnun nýrra íþróttadeilda.
8. gr.
Verksvið framkvæmdastjóra.
Aðalstjórn U.M.F. Stjörnunnar ræður framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn félagsins til þess að annast framkvæmd ákvarðana aðalstjórnar, framkvæmd ákvarðana stjórna einstakra deilda og verkefni félagsins.
Framkvæmdastjóri félagsins skal sitja fundi aðalstjórnar, og hefur hann þar málfrelsi og tillögurétt, en eigi atkvæðisrétt.
Framkvæmdastjóri skal annast undirbúning funda aðalstjórnar og sér um að ákvarðanir þær sem aðalstjórn tekur, komist til framkvæmda.
Framkvæmdastjóri er prókúruhafi U.M.F. Stjörnunnar. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni félagsins prókúru að fengnu samþykki aðalstjórnar. Prókúruhafar félagsins skulu vera fjár síns ráðandi og hafa óflekkað mannorð.Framkvæmdastjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu eigna félagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl og samninga, sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir, sem samþykki aðalstjórnar eða stjórna einstakra deilda félagsins þarf til.
9. gr.
Félagsráðsfundir.
Aðalstjórn skal halda fundi með formönnum deilda eða staðgenglum þeirra eins oft og þurfa þykir, en eigi sjaldnar en tvisvar sinnum á ári. Slíkir fundir kallast félagsráðsfundir og þar skulu helstu ákvarðanir aðalstjórnar kynntar og stefnumarkandi ákvarðanir ræddar.
10. gr.
Deildarstjórnir.
Aðalstjórn skipar minnst þrjá menn í deildarstjórnir. Að jafnaði skal skipa deildarstjórnir eftir að reglulegum starfstíma deilda lýkur. Hlutverk stjórna deilda er að annast daglegan rekstur deilda í samræmi við stefnu og markmið félagsins. Stjórnir deilda fara ásamt framkvæmdastjóra félagsins með framkvæmdastjórn deilda og fjármálastjórn í samræmi við fjárhagsáætlun hverju sinni. Þær hafa hver um sig umsjón með rekstri einstakra deilda, undirbúa fjárhagsáætlanir og sjá um að ársreikningar séu samdir reglum samkvæmt. Stjórnum einstakra deilda er heimil fullnaðarákvörðun mála, sem eigi varða verulegan fjárhag deildanna, enda sé eigi ágreiningur innan stjórnar eða við framkvæmdastjóra um ákvörðunina.
11. gr.
Aðalfundur félagsins.
Aðalfundur félagsins skal haldinn eigi síðar en 15. maí ár hvert. Til aðalfundar skal boðað með minnst tveggja vikna fyrirvara með almennri tilkynningu í tölvupósti til félagsmanna, með auglýsingu á vef félagsins og með almennri auglýsingu í bæjarblaði sé þess kostur. Framboð til aðalstjórnar skal tilkynna til aðalstjórnar minnst viku fyrir aðalfund og skulu framboð til aðalstjórnar vera sérstaklega auglýst um leið og framboðsfrestur rennur út.
Aðalfundur telst löglegur, sé löglega til hans boðað. Kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagsmenn er náð hafa 16 ára aldri.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1) Fundur settur.
2) Kosinn fundarstjóri og fundarritari.
3) Flutt skýrsla aðalstjórnar og einstakra deilda frá síðasta ári.
4) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar aðalstjórnar og einstakra deilda félagsins, ásamt
heildarreikningi fyrir allt félagið.
5) Umræða og atkvæðagreiðsla um skýrslu aðalstjórnar, deilda og reikninga.
6) Lagabreytingar.7) Kjör aðalstjórnar.
· Kosinn formaður til tveggja ára.
· Kosnir tveir af fjórum stjórnarmönnum til tveggja ára.
· Kosinn einn af tveimur varastjórnarmönnum til tveggja ára.
5· Kosinn löggiltur endurskoðandi eða endurskoðunarfélag -
8) Önnur mál.
Á aðalfundi félagsins ræður meirihluti greiddra atkvæða úrslitum mála. Þó þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða til að breyta lögum félagsins, veita aðalstjórn heimild til að selja eða veðsetja fasteignir þess og til að leggja félagið niður. Slíkar tillögur má einungis bera fram á aðalfundi félagsins, eða almennum fundi sbr. 13. gr., enda hafi þær borist aðalstjórn minnst tveimur vikum fyrir fund.
Aðalstjórn skal geta þess í fundarboði að slíkar tillögur hafi komið fram og að menn geti kynnt sér þær í Stjörnuheimilinu við Ásgarð á aðgengilegum tíma.
Verði tillaga um félagsslit samþykkt á aðalfundi eða almennum félagsfundi skal boða til framhaldsaðalfundar eða nýs félagsfundar eftir minnst tvær vikur en innan fjögurra vikna.
Komi til félagsslita skal bæjarstjórn Garðabæjar hafa umráðarétt með eignum og sjóðum félagsins.
Verði sambærilegt félag stofnað síðar innan bæjarfélagsins skulu eignirnar renna til þess.
12. gr.
Fjárhagsáætlun.
Fyrir upphaf hvers starfsárs skulu stjórnir deilda gera fjárhagsáætlun fyrir komandi ár sem skal lögð fyrir aðalstjórn til samþykktar. Fjárhagsáætlun sem aðalstjórn hefur samþykkt skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn U.M.F. Stjörnunnar á viðkomandi reikningsári. Við gerð fjárhagsáætlunar skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu félagsins og hverrar deildar.
Aðalstjórn skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld félagsins fari ekki fram úr heildartekjum þess. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.
Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Heimilt er að endurskoða fjárhagsáætlun aðalstjórnar og deilda félagsins og gera á þeim nauðsynlegar breytingar, ef í ljós koma breytingar á forsendum fjárhagsáætlunar. Slíkar breytingar öðlast gildi þegar aðalstjórn félagsins hefur samþykkt þær. Til útgjalda, sem ekki eru samningsbundin eða leiða af samþykkt aðalstjórnar, má ekki stofna nema til komi samþykki aðalstjórnar.
13. gr.
Félagsfundur.
Aðalstjórn skal boða til almenns félagsfundar ef:
1) meirihluti aðalstjórnar telur þörf krefja,
2) minnst 1/10 hluti atkvæðisbærra félagsmanna krefst þess skriflega eða 3) félagsslit hafa verið samþykkt á aðalfundi eða almennum félagsfundi.
Almennur félagsfundur telst löglegur ef löglega er til hans boðað samkvæmt 11. gr. Í fundarboði skal þess skýrt getið hvaða málefni fundinum er ætlað að fjalla um. Ekki er heimilt að afgreiða aðrar tillögur eða málefni á almennum félagsfundi en getið er í fundarboði. Almennur félagsfundur skal haldinn minnst tveimur vikum og mest fjórum vikum frá því að lögmæt krafa kom fram um aðfundur skuli haldinn. Almennur félagsfundur er lögmætur ef minnst fjórðungur atkvæðisbærra félagsmanna sækir fundinn. Nú telst fundur ekki lögmætur vegna þessa og skal þá boða til nýs fundar með sama hætti og áður. Skal tekið fram í fundarboðinu að til fundarins sé boðað öðru sinni. Telst sá fundur lögmætur óháð því hversu mikil fundarsókn er.
14. gr.
Merki og búningar.
Meginlitir búninga félagsins skulu vera blár og hvítur. Aðalstjórn er heimilt að leyfa undantekningar, s.s. að aukalitum sé bætt við. Aðalstjórn skal setja reglugerð um gerð búninga, sem hafi að geyma leiðbeinandi reglur um hvaða undantekningar verði samþykktar.
Aðalstjórn skal setja reglugerð um notkun og meðferð á félagsmerki U.M.F. Stjörnunnar. Ávallt skal gengið út frá því að merkið sé ess (s) á stjörnu.
15. gr.
Viðurkenningar.
Aðalstjórn skal setja sérstaka reglugerð um veitingar viðurkenninga fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.
16. gr.
Afrekssjóður.
Félagið skal setja á aðalfundi eða almennum félagsfundi reglur um úthlutun úr afrekssjóði semkallast stofnskrá afrekssjóðs.
Aðalstjórn skal setja sérstaka reglugerð um úthlutun úr afrekssjóði sem byggir á stofnskrá afrekssjóðs.
17. gr.
Gildistaka
Lög þessi hafa verið staðfest af framkvæmdastjórn ÍSÍ með fyrirvara. Lögin öðlast þegar gildi og jafnframt falla eldri lög félagsins úr gildi.
Lög samþykkt á aðalfundi 8. maí 2025.
Fyrirvarar.
2. gr.
Í lögum félagsins skal koma fram að það standi fyrir iðkun íþrótta sem viðurkenndar eru af framkvæmdastjórn ÍSÍ.
2. mgr. 11. gr.
Kjörgengi skal miðast við 18 ára aldur.
7. mgr. 11. g
Bæta skal við málsgreinina.
„þar sem tillagan skal borin upp til staðfestingar“.
Bæta skal við ákvæði um að lög félagsins og breytingar á þeim þarfnist staðfestingar UMSK og framkvæmdastjórnar ÍSÍ.
Dagsetning 16.04.2026
Aðalafundur Ungmennafélags Stjörnunnar árið 2026
Tillögur að breytingum á lögum Ungmennafélagsins Stjörnunnar
2. gr.
Bæta skal við greinina:
„sem viðurkenndar eru af framkvæmdastjórn ÍSÍ. “
2. málsl. 2. mgr. 11. gr. skal hljóða svo
„Aðalfundur telst löglegur, sé löglega til hans boðað. Kosningarétt á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagsmenn er náð hafa 16 ára aldri. Kjörgengi skal miðast við 18 ára aldur“
6. mgr. 11. gr.
Bæta skal við málsgreinina. „þar sem tillagan skal borin upp til staðfestingar“.
11. gr.
Ný mgr. er hljóðar svo.
Lög félagsins og breytingar á þeim þarfnast hverju sinni staðfestingar UMSK og framkvæmdastjórnar ÍSÍ.
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2025
Ægir hefur leikið lykilhlutverk í körfuboltanum í Stjörnunni síðastliðin ár. Árið 2025 verður lengi í minnum haft fyrir Ægi Þór. Í upphafi árs var hann fyrirliði íslenska karlalandsliðsins sem vann frækinn sigur á Ítölum á útivelli og var sá mikilvægi sigur partur af því að tryggja liðinu inná Eurobasket þar sem bestu þjóðir Evrópu kepptu síðasta haust. Vorið 2025 varð síðan engu síðra fyrir Ægi og hans menn í karlaliði Stjörnunnar þar sem Stjarnan tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögu körfuknattleiksdeildar með sigri á Tindastól eftir magnaða úrslitaseríu. Ægir var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins tímabilið 2024-2025. Ægir er mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkendur í Stjörnunni og er virkur í starfi deildarinnar. Ægir sinnir þjálfun og hefur alla tíð gefið mikið af sér til félagsins og hefur sannast sagna verið mikill hvalreki fyrir íþróttir í Garðabæ.
ÆGIR ÞÓR STEINARSSON
SKÝRSLA ALMENNINGSDEILDAR
LÍKAMSRÆKT B&Ó
Líkamsrækt B&Ó hefur starfað í 36 ár á þessu ári, 2025 eða frá 1989 undir merkjum Almenningsdeildar Stjörnunnar. Því var fagnað vel 26/4-28/4 að Laugarbakka í Miðfirði á síðasta ári.
Frá byrjun hefur verið starfræktir sér kvenna- og karlatímar og hefur fjöldinn verið ansi svipaður síðustu 35 árin ca. 60 konur og 60 karlar með fastan 50 – 55 manna kjarna í hvorum hópi. S.l. ár hefur fjöldinn verið dálítið rokkandi, nýir þátttakendur komið inn og aðrir hætt. Þó hefur fasti kjarninn haldið sér að mestu eins og áður.
Tímarnir í Ásgarði voru með sama sniði og undanfarin ár eða 50 mín. tvisvar í viku hjá körlunum, þ.e. kl. 17:50 og annar hópur kl. 18:40 á mánud. og miðvikud. en hjá konunum er hópur kl. 07:50 á mánud., miðvikud. og föstud. en annar hópur kl. 17:00 á mánud. og miðvikud. Við segjum alltaf að þessi líkamsrækt er 50 % líkamsrækt og hin 50 % er félagslegt, ekkert breyst!! Skýrist það að því að félagslegi þátturinn er líka mikið ræktaður, t.d. er ganga á hverjum laugard., þar sem allir koma og taka þátt um Garðabæ, en tvisvar í mán. er farið í lengri skipulagðar göngur með leiðsögn á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni sem jafnvel er farið á kaffihús í lokin eða boðið upp á kakó, kex og kristal.
FÉLAGSSTARFIÐ
Vorönnin hófst 6 jan.- 30 apr.
6. febrúar var árlegt Þorrablót haldið að Garðaholti með 70 manns, þar sem Diskótekið Dísa spilaði dinner músik og sá um fjörið um kvöldið.
Í síðustu skýrslu varðandi 35 ára Afmælis hátíðina okkar í fyrra gleymdist að geta styrktaraðilans sem gaf okkur bakpokana og þátttakendur ræktarinnar fengu að gjöf var HRÍMLAND.
Haustönnin hófst 1 sept. – 18 des.
Miðbæjargangan var farin að venju 29 nóvember þar sem gengið var frá Reykjavík Natura Hótel eins og árið áður. Baldur Ó. Svavarsson leiddi gönguna og fræddi okkur um Valsreitinn. Erling Ásgeirsson sagði okkur frá framkvæmdunum á nýja Landsspítalanum, síðan gengum við um miðbæinn og enduðum við á Satt þar sem að boðið var upp á ekta Jólahlaðborð. Frábær dagur og samvera, allt að 50 manns! Árið endaði svo með hinni árlegu göngu í Heiðmörkinni og að sjálfsögðu helgistund með Magnúsi B. Björnssyni í Maríuhellum 13.des.
Starfsemin gekk að öllu leyti vel, allir ánægðir að geta stundað líkamsrækt saman. Viljum við þakka þátttakendunum okkar kærlega fyrir okkur og frábæra samveru síðasta ár.
Með kærri líkamsræktar kveðju, Birna og Óli
Stjórn Almenningsdeildar vill sérstaklega þakka þeim Birnu og Óla kærlega fyrir þeirra framlag til almenningsíþrótta í Garðabæ. Einnig viljum við þakka iðkendum og öllum sem komið hafa að starfi deildarinnar fyrir þeirra þátt. Almenningsíþróttir eru heilsueflandi líkamlega og ekki síður félagslega og ber mottó líkamsræktarinnar vitni um það en það er ,,Við viljum lifa“.
Fyrir hönd Almenningsdeildar Stjörnunnar
Ólafur Reimar Gunnarsson
formaður almenningsdeildar.
HLAUPAHÓPUR
STJÓRN HLAUPARÁÐS
Árni Möller - Formaður
Agnar Jón Ágústsson - Gjaldkeri
Helga Melsteð - Ritari
Geir Þórarinn Gunnarsson - Meðstjórnandi
Helgi Magnússon - Meðstjórnandi
Sigurbjörg Jóhannesdóttir - Meðstjórnandi
ÖFLUGT OG VAXANDI STARF
Hlaupahópur Stjörnunnar er hluti af Almenningsíþróttadeild Stjörnunnar og hefur starfsemin verið öflug á árinu 2025. Hópurinn samanstendur af fjölbreyttum hópi hlaupara, allt frá byrjendum til lengra kominna. Æfingar eru fjórum sinnum í viku, þar af þrjár undir leiðsögn þjálfara, og byggja á skýru skipulagi sem auðveldar fólki að samræma æfingar við annasamt daglegt líf.
ÞJÁLFUN OG AÐSTAÐA
Arnar Pétursson, einn fremsti hlaupari og þjálfari landsins, leiðir þjálfun hópsins og sinnir öllum getustigum. Æft er bæði utandyra á stígum bæjarins og í Heiðmörk, auk þess sem styrktaræfingar fara fram í Miðgarði. Yfir vetrartímann er góð inniaðstaða á hlaupabraut í Kaplakrika sem hefur aukið gæði æfinga til muna. Aukin áhersla á styrktarþjálfun hefur skilað sér í betri árangri og færri meiðslum meðal iðkenda.
STJÖRNUHLAUPIÐ
Stærsti viðburður ársins var Stjörnuhlaupið sem haldið var í samstarfi við nýjan aðalstyrktaraðila, Sport24. Við það tækifæri var farið í markvissar umbætur á framkvæmd og ásýnd hlaupsins. Marksvæðið var endurhannað með áherslu á fagurfræðilega og stílhreina framsetningu og betri upplifun fyrir þátttakendur og áhorfendur, með nýju uppblásnu marki og ríkari sjónrænni umgjörð. Góðar merkingar á braut voru gerðar enn betri og lögð var sérstök áhersla á skýrar og öruggar leiðbeiningar fyrir þátttakendur, sem skilar sér í betri upplifun.
Jafnframt var markaðssetning efld með nýtingu nýrra samfélagsmiðla og annars kynningarefnis. Þátttakendum fjölgaði verulega frá fyrra ári og var almenn ánægja með framkvæmdina.
Nýjung var sett á laggirnar sem var Skemmtiskokk fyrir alla aldurshópa. Skemmtiskokkið tókst mjög vel og rennur ágóði af því til Minningar- og styrktarsjóðs Arnarins. Stefnt er að því að þróa það áfram sem fjölskylduvænan viðburð.
Vert er að þakka fyrri aðalstyrktaraðila hlaupsins, VHE, sérstaklega fyrir þeirra framlag til uppbyggingar Stjörnuhlaupsins á undanförnum árum.
FÉLÉAGSLÍF OG VIÐBURÐIR
Félagslíf innan hópsins er öflugt. Hlauparáð og Viðburðanefnd hafa staðið fyrir fjölbreyttum viðburðum á árinu, skipulagðri hlaupaferð til Lissabon, þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni og öðrum hlaupum innanlands, auk árshátíðar og annarra samverustunda. Hlauparar hafa einnig tekið sig saman í minni hópum og tekið þátt í hlaupum erlendis með góðum árangri.
ÁSKORANIR OG SÉRSTAÐA
Helstu áskoranir felast í aukinni samkeppni um nýliða, sérstaklega í yngri aldurshópum. Sérstaða hlaupahópsins liggur hins vegar í heildstæðu starfi allt árið, góðri aðstöðu og faglegri þjálfun sem stuðlar að bættri heilsu og vellíðan þátttakenda.
Allir eru velkomnir í Hlaupahóp Stjörnunnar.
Árni Möller
Formaður Hlaupahóps Stjörnunnar
SKÝRSLA FIMLEIKADEILDAR
Fjöldi iðkenda hefur stöðugt farið vaxandi og með góðri skipulagningu hafa yfirþjálfarar náð að tryggja að allir fái sitt rými í salnum og komist á þau áhöld sem þarf. Nú er þó svo komið að fjöldinn er að nálgast hámarksgetu salarins og því er leitað leiða til að geta boðið öllum iðkendum sem vilja æfa fimleika viðunandi aðstæður til iðkunar, þar sem salurinn getur ekki tekið við fleirum. Iðkendum fimleikadeildar fjölgaði mikið á árinu 2025 og aukin voru pláss í öllum hópum deildarinnar. 820 iðkendur eru nú í fimleikadeild frá 3 ára upp í 26 ára aldur.
Markmið ársins 2025 var að tæma alla biðlista inn í deildina og tókst það verkefni ágætlega. Allir iðkendur 7 ára og eldri fengu pláss hjá deildinni og því engir biðlistar hjá þeim aldri. Enn eru langir biðlistar fyrir iðkendur 6 ára og yngri og lítur ekki út fyrir að hægt verði að bjóða öllum pláss hjá deildinni á næstu árum. Ungir iðkendur er því að horfa á bekkjarfélaga sína fara í þá íþrótt sem þau vilja vera í og fá ekki að vera með.
Sterk samvinna ríkir meðal þjálfara innan fimleikadeildarinnar og starfsmannavelta er lítil. Almenn ánægja er með starfið heilt yfir en fjöldi iðkenda í salnum farinn að hafa áhrif á gengi hópa og frammistöðu. Árið 2026 fer í að finna lausn á þeim vanda og veita öllum iðkendum deildarinnar sömu þjónustu.
Gerðar voru breytingar á meistaraflokkum þar sem hluti stúlkna í áhaldafimleikum var farinn að keppa í senior flokki, sem leiddi til þess að sérstakur meistaraflokkur í áhaldafimleikum var settur á laggirnar.
STJÓRN OG STARFSMENN FIMLEIKADEILDAR 2025
Stjórn
Ingibjörg J Vilhjálmsdóttir, formaður
Sunna Helgadóttir, ritari (hætti haust 2025)
Erna Mathiesen (hætti haust 2025)
Fríða Árnadóttir
Heiðdís Dögg Sigurbjörnsdóttir
Sveinn Þórarinsson (hætti haust 2025)
Rekstrarstjóri
Una Brá Jónsdóttir
Þjálfarar í fullu starfi
Andrea Sif Pétursdóttir, yfirþjálfari í hópfimleikum
Helgi Laxdal, yfirþjálfari í hópfimleikum yngri flokka karla,
Mikkel Schertz, yfirþjálfari í hópfimleikum í unglinga og fullorðinsflokki
Ingvar Daði Þórisson, þjálfari í hópfimleikum
Hildur Ketilsdóttir, þjálfari og yfirþjálfari í áhaldafimleikum (orlof frá okt 2025)
Vladimir Zaytsev, þjálfari í áhaldafimleikum
Alfredo Guevara, þjálfari í áhaldafimleikum
Freyja Sævarsdóttir, þjálfari í áhaldafimleikum til júlí 2025
Sigríður Jóna Sigurðardóttir þjálfari í áhaldafimleikum frá ágúst 2025
Jimmy Ekstedt þjálfari í áhalda- og hópfimleikum frá ágúst 2025
Þjálfarar í tímavinnu:
53 þjálfarar í verktöku
20 þjálfarar í tímavinnu
Fjórir þjálfarar eru á meistaraflokki kvenna og 4 á meistaraflokki blandaðs liðs
ÁRANGUR Á ÁRINU Í BARNA- OG UNGLINGASTARFINU
Árangur í yngri barna starfi fimleikadeildarinnar var mjög góður árið 2025. Iðkendur Stjörnunnar oftast í topp þremur sætunum bæði í áhaldafimleikum og hópfimleikum í flestum aldursflokkum. Hér eru þeir sem unnu titla á árinu:
Áhaldafimleikar
Meistarahópur Stjörnunar lenti í 2.sæti á Bikarmóti
Arney Ívarsdóttir varð Íslandsmeistari í 1.þrepi
Sigurrós lenti í 2.sæti á Íslandsmóti í frjálsum æfingum í Junior flokki.
Kolbrún Eva lenti í 3.sæti á Íslandsmóti í frjálsum æfingum í Junior flokki.
Mikill árangur var á Íslandsmóti hjá meistarahóp: Nanna var í 3.sæti á gólfi, Sigurrós var í 2.sæti á stökki, gólfi og 3.sæti á tvíslá, Eva var í 2.sæti á stökki, Kolbrún 3.sæti á stökki, 3.sæti á slá og 3.sæti á gólfi og Þóranna 3.sæti á tvíslá
Stjarnan varð einnig Bikarmeistari í 2.þrepi og tóku þar þátt fyrir hönd Stjörnunnar Matthildur Ísey, Rebekka Dís, Nína Lind, Paula Marie og Ragna María.
Hópfimleikar
3.flokkur A varð Bikarmeistari 2025.
Strákarnir í Kke Bikar- og Íslandsmeistarar 2025.
Meistaraflokkur kvenna Bikar- og Íslandsmeistari 2025.
Meistaraflokkur Karla Bikar- og Íslandsmeistari 2025.
Meistaraflokkur Blandaðs liðs Bikar og Íslandsmeistari 2025.
Meistaraflokkar
Þjálfarar meistaraflokks Stjörnunnar ákváðu í byrjun árs 2025 að setja strik í sögu félagsins og hópfimleika á Íslandi og senda þrjú fullmönnuð lið á Norðurlandamót í nóvember. Þýddi það að 36 iðkendur voru sendir út á stórmót á vegum Stjörnunnar þetta árið skipt í kvennalið, karlalið og blandað lið. Þetta verkefni tókst og það með stæl og stóðu öll lið Stjörnunar sig með glæsibrag. Mikil fagmennska, samvinna og samheldni var í gegnum verkefnið.
Meistaraflokkur kvenna lenti í 2.sæti á Norðurlandamótin og í 1.sæti í dansi og hæsta einkunn af öllum liðum á mótinu. Blandaða liðið lennti í 6.sæti eftir örlitla hnökra í keppni. Karlaliði lenti í 7.sæti eftir frábært mót.
Landslið
Stúlkurnar Margrét Lea, Þóranna og Nanna kepptu fyrir Íslands hönd á Smáþjóðleikunum. Þóranna fékk gull á tvíslá, Nanna fékk gull á gólfi og Margrét Lea var í 3.sæti á slá.
Sigurrós Ásta varð Norðurlandameistari á gólfi. Nanna, Katla og Þóranna fór á Norður-Evrópumót í áhaldafimleikum.
Ísland varð í 5.sæti á Norður-Evrópumóti og fór Þóranna í úrslti á tvíslá og lenti í 4.sæti í úrslitum og 12.sæti á gólfi.
Kolbrún Eva og Sigurrós Ásta voru valdar fyrir hönd Íslands til að taka þátt í EYOF.
Kolbrún Eva og Sigurrós Ásta tóku þátt á Top Gym og lenti liðið í 3.sæti í liðakeppni mótsins.
Engin verkefni voru í hópfimleikum á vegum landsliðsins.
Rekstur
Rekstur deildarinnar gekk vel árið 2025. Breytingar í uppsetningu á þjálfurum á grunnhópum og Krílum hafði mikil áhrif. Breytt uppsetning á greiðslum fyrir mót og annað sem bætti rekstur deildarinnar mikið. Vegna mikillar aukningar á iðkendum á haustönn voru ráðnir inn þrír þjálfara í fulla stöðu. Mikill kostnaður var við að fara með þrjú lið á Norðurlandamót en með fjáröflun náðist að halda tapi á verkefninu í lágmarki.
Áhöld
Garðabær styrkti fimleikadeildina fyrir nýjum áhöldakaupum á árinu 2025 og var lagt áhersla á að bæta þjónustu fyrir yngri flokka svo hægt væri að nýta minni svæði fyrir þessa hópa en á sama tíma veita góða þjónustu.
Fast trackið var endurnýjað en varð eitthvað misreiknað í mælingum þar og kom vitlaus dúkur - ekki hefur enn fundist lausn á því máli með Garðabæ.
Nýting á áhöldum er mikil og álag því mikið á áhöldum sem veldur því að endurbætur á öllum áhöldum verður meiri.
Lokaorð
Deildin vill þakka framkvæmdastjóra og skrifstofu fyrir gott samstarf á árinu. Þjálfarar eiga hrós skilið fyrir gott starf sem hefur sannarlega skilað sér í frábærum árangri á árinu. Starfsfólk Ásgarðs þökkum við einnig fyrir vel unnin störf og gott viðmót. Síðast en alls ekki síst vill stjórn þakka öllum þeim iðkendum, sjálfboðaliðum, foreldrum, styrktaraðilum og öðrum sem hafa unnið ómetanlegt starf fyrir deildina síðastliðin ár.
Fyrir hönd stjórnar Fimleikadeildar,
Ingibjörg Jóhanna Vilhjálmsdóttir, formaður.
DEILD ÁRSINS 2025
Deild ársins árið 2025 er Fimleikadeild. Barna- og unglingastarf deildarinnar er til fyrirmyndar og er fjöldi iðkenda 840. Á árinu náðu meistaraflokkar deildarinnar einstökum árangri þar sem meistaraflokkur karla, kvenna og blandað lið deildarinnar unnu bæði bikar – og Íslandsmeistaratitla. Deildin sendi þrjú lið á Norðurlandamót í nóvember, kvenna – karla og blandað lið. Alls voru 36 iðkendur frá félaginu á Norðurlandamóti. Meistaraflokkur kvenna lenti í 2.sæti á mótinu, blandaða liðið í 6.sæti og karlaliðið í 7.sæti. Rekstrarniðurstaða Fimleikadeildar var góð á árinu 2025.
Þjálfarar deildarinnar eiga hrós skilið fyrir gott starf á árinu ásamt öllum þeim mannauði sem deildin hefur innan sinna raða. UMF Stjarnan er stolt af fimleikadeildinni og óskar henni til hamingju með titilinn Deild ársins og einstakan árangur á árinu 2025.
FIMLEIKADEILD
SKÝRSLA HANDKNATTLEIKSDEILDAR
Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur verið í markvissum vexti á undanförnum árum og iðkendum hefur fjölgað verulega. Árangur meistaraflokkanna hefur haft þar umtalsverð áhrif, sem og gengi íslensku landsliðanna. Mikilvægt er að deildin haldi áfram að skipa sér í fremstu röð á landsvísu, bæði í meistaraflokkum kvenna og karla, samhliða því að efla og styrkja faglegt og metnaðarfullt ungmennastarf.
Stjórn deildarinnar hefur mótað skýra stefnu þar sem lögð er rík áhersla á uppbyggingu yngri flokka. Markmið þeirrar stefnu er að rækta hæfileikaríkt íþróttafólk innan félagsins sem getur með tímanum tekið þátt í starfi meistaraflokka og, eftir atvikum, náð langt á vettvangi landsliða. Með þessu leggur Stjarnan metnað í að halda úti einu öflugasta yngriflokkastarfi landsins, þar sem um 475 iðkendur æfa. Nú starfa yfir 40 þjálfarar og aðstoðarþjálfarar innan deildarinnar.
Á næstu árum verður áfram lögð áhersla á frekari uppbyggingu, meðal annars með auknum stuðningi við styrktarþjálfun, geðræna heilsu og fræðslu um næringu. Jafnframt er stefnt að því að efla sérhæfða þjálfun, þar á meðal markmannsþjálfun.
Á yfirstandandi tímabili hefur gengi meistaraflokka karla og kvenna þó ekki verið sem skyldi. Verulegar breytingar hafa orðið á þjálfarateymum liðanna og talsverðar áskoranir fylgt því. Bæði liðin taka nú þátt í umspili um sæti sitt í Olísdeildum og ríkir trú innan deildarinnar á að það takist.
Stjarnan rekur U-lið í karlaflokki sem keppir í 2. deild. Það er talið mikilvægt skref í að brúa bilið fyrir unga leikmenn sem stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Meistaraflokkur kvenna er hins vegar skipaður ungu liði og því hefur ekki reynst unnt að koma á sambærilegu millistigi að sinni.
Handknattleiksdeildin vill færa styrktaraðilum sínum einlægar þakkir fyrir þann mikilvæga stuðning sem þeir hafa veitt starfseminni. Hekla er stærsti styrktaraðili deildarinnar og hefur samstarfið reynst afar farsælt. Fyrirtækið kom inn af miklum krafti í starfið og ber íþróttahúsið nafnið Hekluhöllin. Aðrir samstarfsaðilar eru ekki síður mikilvægir. Félagið nýtur stuðnings fjölmargra öflugra aðila, svo sem Bílasala Reykjavíkur, TM, Ölgerðin, Bílaleiga Akureyrar, Dráttarbílar, KPMG, Íslandsbanki, Stál og suða og Þingvangur, sem öll fá sérstakar þakkir fyrir sitt framlag.
Reynslan undanfarna mánuði sýnir að verulegar áskoranir felast í fjáröflun og því er mikilvægt að fyrirtæki í bæjarfélaginu styðji við íþróttastarf af fremsta megni. Hvort sem um ræðir stór eða smá framlög skipta þau öll máli. Öflugt íþróttastarf stuðlar að bættri heilsu, jákvæðum félagslegum tengslum og hefur verulegt forvarnargildi. Án stuðnings atvinnulífsins væri öflugt og uppbyggilegt íþróttastarf ekki mögulegt.
Sjálfboðaliðar gegna lykilhlutverki í starfsemi deildarinnar og eiga sérstakar þakkir skilið fyrir óeigingjarnt framlag sitt. Framlag þeirra í barna- og unglingastarfi er afar mikilvægt, sem og þeirra sem koma að meistaraflokkum kvenna og karla. Án þessa öfluga hóps væri ekki unnt að viðhalda jafn metnaðarfullu starfi. Starf deildarinnar einkennist af jákvæðum anda og sterkum félagsanda og eru fleiri hvattir til að taka þátt.
Að lokum vill formaður deildarinnar færa öllum þeim sem hafa stutt handknattleiksdeildina kærar þakkir fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf. Undirritaður formaður hefur tekið þá ákvörðun að láta af störfum að loknu tímabili í vor og óskar eftirmanni sínum alls hins besta í starfi. Jafnframt er tilefni til að færa sérstakar þakkir til formanns aðalstjórnar Stjörnunnar, stjórn og starfsfólks skrifstofu fyrir gott samstarf, en stuðningur þeirra og hvatning hefur verið ómetanleg.
SKÝRSLA KNATTSPYRNUDEILDAR
KNATTSPYRNUDEILD STJÖRNUNNAR
Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem eitt af fremstu félögum landsins, bæði þegar kemur að markvissu og öflugu starfi í yngri flokkum og öflugu afreksstarfi. Uppbyggingin hefur einkennst af miklum metnaði og framsýni þar sem lögð er áhersla á að skapa umhverfi sem styður við bæði einstaklingsþróun og liðsheild. Sú vegferð heldur áfram af fullum krafti, með það að markmiði að efla félagið enn frekar og tryggja áframhaldandi árangur til framtíðar.
Stjórn knattspyrnudeildarinnar var skipuð eftirfarandi aðilum: Sæmundur Friðjónsson, Einar Páll Tamimi, Áslaug Guðmundsdóttir, Helgi Hrannarr Jónsson og Valgeir Sigurðsson. Í lok tímabils 2025 lét Helgi Hrannarr Jónsson af stjórnarstörfum og þökkum við honum kærlega fyrir óeigingjarnt og dyggilegt starf í þágu deildarinnar undanfarin ár.
Þórarinn Ingi Valdimarsson var ráðinn í starf verkefnastjóra knattspyrnudeildar og hefur hann komið með mikinn kraft inn í starfið frá fyrsta degi. Ráðningin er liður í uppbyggingu á skipulagi deildarinnar þar sem starfsmenn sinna daglegum rekstri deildarinnar í samstarfi við sjálfboðaliða.
Rekstur knattspyrnudeildarinnar var krefjandi á árinu 2025 og undirstrikar mikilvægi þess að áfram verði unnið af aga og ábyrgð í fjármálum. Ljóst er að viðhalda þarf skýrri sýn á rekstur deildarinnar en hann þarf að vera sjálfbær til lengri tíma. Þó er vert að nefna að horfa þarf á nokkur ár saman þegar rekstur deildarinnar eru skoðaður þar sem góður árangur eins tímabils getur gjörbreytt tekjum deildarinnar árið eftir. Halda þarf áfram aðhaldi á gjaldahliðinni og tryggja markvissa tekjuöflun til að tryggja gott jafnvægi í rekstrinum. Með samstilltu átaki og áframhaldandi góðri vinnu er unnt að styrkja rekstrargrundvöll deildarinnar og skapa traustan grunn fyrir vöxt og árangur á komandi árum.
Ljóst er að á árinu 2026 þarf að skipta um gervigras á Samsung vellinum ásamt lagfæringum á öðrum völlum á Stjörnusvæðinu, en sú endurnýjun er nauðsynleg til að viðhalda þeirri fyrirmyndaraðstöðu sem félagið hefur byggt upp. Miðgarður, knatthús Stjörnumanna, hefur nýst okkur afar vel og er ótvíræður styrkur í starfi deildarinnar.
Knattspyrnudeild Stjörnunnar þakkar öllum stuðningsmönnum, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum, starfsmönnum og aðalstjórn fyrir gott og farsælt samstarf á árinu 2025 og hlakkar til áframhaldandi samvinnu á komandi árum.
YNGRI FLOKKAR STJÖRNUNNAR
Yngri flokkastarf Stjörnunnar er í miklum blóma og heldur fjöldi iðkenda áfram að aukast. Iðkendur eru nú um 1.160 og staðfestir að Stjarnan er eitt stærsta og öflugasta félag landsins í knattspyrnu. Fjöldinn skýrist m.a. af vexti bæjarfélagsins og því trausti sem foreldrar og iðkendur sýna félaginu. Knattspyrnudeild heldur utan um 64 æfingar á viku og yfir 800 leiki árlega í 5.–2. flokki karla og kvenna.
Deildinni hefur tekist að halda góðum kjarna af þjálfurum og bætt við öflugum nýjum þjálfurum á öllum aldursstigum. Stjarnan er orðið eftirsóknarverðasta starfsumhverfið í yngri flokka knattspyrnu á Íslandi og sýnir það stöðu félagsins í greininni. Við erum nú með 31 þjálfara og 40–45 yngri aðstoðarþjálfara. Menntunarstig þjálfara er hátt og eru nánast allir þjálfarar komnir með UEFA B- eða UEFA A-gráðu, sem er mikill áfangi og endurspeglar þá áherslu sem lögð hefur verið á þjálfaramenntun undanfarin ár.
Við höfum aldrei verið jafn vel mönnuð í yngstu flokkunum og nú, enda brýnt að taka vel á móti þeim gríðarlega fjölda iðkenda sem knattspynudeildin tekur á móti á hverju ári.
Helstu breytingar sem urðu á árinu voru að Arnar Páll Garðarsson og Hilmar Árni Halldórsson yfirgáfu félagið og þökkum við þeim kærlega fyrir framlag sitt. Páll Árnason er áfram yfirþjálfari yngri flokka. Elís Maron Hannesson tók við yfirumsjón minni boltans og Orian Burzic kom inn í eldri flokkana og sér um innleiðingu Tactical Periodization. Andri Freyr Hafsteinsson sér áfram um ákveðin mál í fjarvinnu og Arnar Darri Pétursson er áfram markmannsþjálfari.
Meðal nýmæla á árinu má nefna IDP – Individual Development Pathway – sem Orian Burzic stýrir. Þetta felur í sér að félagið býður nú upp á aukaaæfingar fyrir alla iðkendur í þeim tilgangi að efla alhliða þróun hvers og eins. Stjarnan er fyrsta félagið á Íslandi til að bjóða upp á þetta og er það mikilvægt framfaraskref sem við hlökkum til að fylgjast með á næstu árum.
Þór Jarl Jónasson hefur tekið við styrktarþjálfun yngri flokka og komið afar vel inn í hópinn. Bragi Halldórsson heldur áfram sem sjúkraþjálfari yngri flokka og hefur unnið ótrúlega gott starf. Nýlega var FMS – Functional Movement Screening – innleitt þar sem allir iðkendur í 4.–2. flokki fara í mat og fá send einstaklingsmiðar æfingar í meiðslaforvörn. Þessi þjónusta er að fullu gjaldfrjáls fyrir iðkendur og er hún til fyrirmyndar í íslenskri unglingaknattspyrnu.
Kúlturvinnan heldur áfram undir forystu Páls Árnasonar og Orians Burzic og er það verkefni stöðugt að þróast. Samstarf við skóla í Garðabæ er orðið mjög öflugt og heimsækja þjálfarar skólana reglulega með góðum árangri. Í gangi er spennandi þróunarverkefni með Garðaskóla þar sem fyrirhugað er að bjóða upp á Íþróttafræðigrein fyrir nemendur í 9. og 10. bekk – verkefni sem vonandi verður kynnt fyrir öllum skólum í Garðabæ á næstu einu til tveimur árum.
Þjónustu- og ánægjukönnun meðal foreldra er framkvæmd árlega og gefur könnunin okkur gagnlegar vísbendingar sem nýtast markvisst til að bæta starfið enn frekar.
Stjarnan leggur áherslu á að iðkendur fái verkefni við sitt hæfi, að árangur sé mældur í lærdómi og framförum fremur en úrslitum, og að virðing, hugrekki og þrautseigja séu grundvöllur í öllu uppeldisstarf félagsins.
MEISTARAFLOKKUR KVENNA
Meistaraflokkur kvenna stóð sig með stakri prýði á árinu en liðið endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar með 32 stig – 10 sigrar, 2 jafntefli og 11 tap. Niðurstaðan í heild var góð og styrkur að ná sæti í efri hlutanum, fyrir skiptingu deildarinnar.
Í bikarkeppni KSÍ féll liðið úr keppni í 16-liða úrslitum gegn Tindastól, en þrátt fyrir það gefur þátttakan dýrmæta reynslu og hvatningu til framtíðar.
Eftir tímabilið lagði Betsy Hassett skóna á hilluna eftir flottan feril með liðinu. Hún kom til Stjörnunnar fyrir tímabilið 2020 og lék yfir 100 leiki fyrir félagið, þar sem hún var lykilleikmaður bæði innan vallar sem utan.
Í lok tímabilsins lét Jóhannes Karl Sigursteinsson og Arnar Páll Garðarsson af störfum og Óskar Smári tók við sem aðalþjálfari. Við þökkum Jóhannesi Karl fyrir hans framlag og vitum að hann fylgist náið með liðinun enda Garðbæingur og stuðningsmaður í stúkunni. Samhliða væntum við mikils af Óskari Smára í hlutverki aðalþjálfara.
Fram undan er spennandi tími hjá liðinu með nýjan þjálfara við stjórnvölinn þar sem haldið verður áfram að byggja upp öflugt og gott lið. Ljóst er að meistaraflokkur kvenna mun verða sterkari með hverju árinu enda mjög öflugur leikmenn að koma uppúr yngri flokkum deildarinnar.
MEISTARAFLOKKUR KARLA
Tímabilið 2025 var kaflaskipt hjá meistaraflokki karla. Jökull Elísabetarson hélt áfram sem aðalþjálfari og var með sama þjálfarateymi og árið áður, fyrir utan að Björn Berg Bryde ákvað að hætta.
Liðið endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar með 42 stig – 12 sigrar, 6 jafntefli og 9 tapleiki. Liðinu gekk ekki vel í úrslitakeppni Bestu deildarinnar en þar náði liðið aðeins að safna 2 stigum af 15 mögulegum, eitthvað sem er ekki í takt við væntingar sem gerðar eru til liðsins. Þrátt fyrir það náði liðið að tryggja sér Evrópusæti, sem er mikilvægt markmið og sýnir stöðu félagsins í íslenskri knattspyrnu.
Í bikarkeppninni komst liðið í undanúrslit en féll þar út á móti Val í hörku viðureign.
Meðal athyglisverðra tíðinda á tímabilinu var koma fjögurra erlendra leikmanna sem komu í sumarglugganum. Þar ber hæst að nefna Steven Caulker, sem hefur leikið með sterkum liðum á Englandi og kom með mikla reynslu inní leikmannahópinn. Virkilega skemmtileg viðbót við hópinn sem annars var mjög flottur.
Andri Adolphsson lagði skónna á hilluna eftir farsælan feril en hann spilaði yfir 300 leiki hér á landi með nokkrum liðum.
Hvað varðar leikmannasölur þá má nefna að Kjartan Már Kjartansson var seldur til Skotlands í júlí 2025 og Alexander Máni Guðjónsson til Danmerkur. Þessar sölur eru enn ein staðfesting á því að uppbygging yngri flokka félagsins hefur verið markviss og árangursrík undanfarin ár. Sterk tenging milli yngri flokka og meistaraflokka er lykilþáttur í þeim árangri.
Stemningin í stúkunni hefur oft verið betri og er það atriði sem við viljum leggja aukna áherslu á fyrir komandi tímabili. Þetta er áskorun sem við tökum alvarlega og stefnum að því að bæta úr á árinu 2026. Þar geta bæði stuðningsmenn og félagið í heild lagt sitt af mörkum til að skapa enn öflugri umgjörð í kringum liðin okkar.
Heilt yfir var árið 2025 gott hjá knattspyrnudeild Stjörnunnar og getum við litið bjartsýn á framtíðina.
Áfram Stjarnan!
Knattspyrnudeild Stjörnunnar
LIÐ ÁRSINS 2025
MEISTARAFLOKKUR KARLA Í KÖRFUKNATTLEIK
Meistaraflokkur karla í körfuknattleik vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á árinu. Baldur Þór Ragnarsson tók við liðinu í upphafi tímabils og honum ásamt stjórn tókst að setja saman lið sem var eitt það skemmtilegasta í deildinni 2024/2025. Liðið var í toppbaráttu allt tímabilið og endaði deildarkeppnina í öðru sæti á eftir liði Tindastóls.
Liðið spilaði við ÍR í 8. liða úrslitum, Grindavík í 4. liða úrslitum og endaði síðan tímabilið á úrslitarimmu við Tindastól. Liðið vann Tindastól í leik fimm á Sauðárkróki og stóð uppi sem Íslandsmeistari í lok tímabils. Á sama tíma var Hlynur Bæringsson að leika sinn síðasta leik á glæstum ferli og endaði það með fyrsta Íslandsmeistaratitli körfuknattleiskdeildar Stjörnunnar í meistaraflokki. Fyrir árangurinn á árinu 2025 hlýtur meistaraflokkur karla nafnbótina lið ársins hjá UMF Stjörnunni árið 2025.
SKÝRSLA KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR
STJÓRN
Einar Karl Birgisson, formaður
Ása Geirsdóttir, meðstjórnandi
Gunnar Viðar, meðstjórnandi
Sigurður Þórðarson, meðstjórnandi
Þorsteinn Þorbergsson, meðstjórnandi
BARNA OG UNGLINGASTARF KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR
Árið 2025 var gjöfult fyrir barna- og unglingaráð körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar.
Deildin bauð upp á æfingar og tefldi fram liðum í öllum árgöngum hjá báðum kynjum. Heildarfjöldi iðkenda í unglingastarfi deildarinnar var 559, sem er fjölgun frá árinu 2024 þar sem örlítil fækkun varð. Sú þróun skýrist að mestu af mikilli fjölgun í yngstu árgöngunum, bæði strákar og stelpur sem eru frábærar fréttir, lengi býr að fyrstu gerð.
Stjarnan er eftir sem áður fjölmennasta körfuknattleiksdeild landsins.
ÁRANGUR
Barna- og unglingastarf er frábrugðið meistaraflokkum að því leyti að árangur er mældur með fleiri hætti en eingöngu úrslitum eða titlum. Engu að síður er vert að nefna að Stjarnan vann flesta Íslands- og bikarmeistaratitla yngri flokka á tímabilinu og átti jafnframt flesta iðkendur í landsliðsverkefnum síðasta sumar.
Árangur undanfarinna ára má rekja til margra þátta. Þar ber helst að nefna samkeppnishæfa meistaraflokka, þar sem fyrirmyndir keppa til sigurs í faglegu og metnaðarfullu umhverfi sem hefur hvetjandi áhrif á yngri iðkendur. Þessi árangur náði svo hámarki síðastliðið vor með Íslandsmeistaratitli meistaraflokks karla, það hefur verið mikil lyftistöng fyrir deildina alla.
Ekki síður skiptir máli sá hópur hæfra þjálfara sem starfar innan deildarinnar og sinnir starfi sínu af alúð og fagmennsku. Körfuknattleiksdeildin hefur verið lánssöm að hafa á að skipa öflugum þjálfurum úr nærsamfélaginu, og árangur deildarinnar byggir að stórum hluta á þeirra framlagi og verður þeim seint fullþakkað.
STARFIÐ
Hlynur Bæringsson er rekstrarstjóri deildarinnar og leiðir faglegt starf og Heimir Örn Sveinsson formaður BogU.
Fyrir utan hefðbundnar æfingar og keppni hefur deildin bætt verulega í annars konar þjónustu við iðkendur, bæði á afreksstigi og með lýðheilsu sjónarmið að leiðarljósi. Má þar nefna nokkur atriði þar sem við skerum okkur frá mörgum öðrum félögum.
· Styrktarþjálfun hefst í 7.flokki og er innifalin í æfingagjöldum og í æfingadagskrá hópanna, elstu hóparnir eru með þrjár styrktaræfingar í viku sem leitt er af Jakobi Breka Ingasyni styrktarþjálfara.
· Einstaklingsþjálfun með Ilija Omrcen. Iðkendur frá 7. Flokki og eldri geta æft aukalega á skólatíma og á morgnana.
· Stjarnan B er verkefni sem hófst haustið 2024, þar gefst ungum mönnum tækifæri til að æfa á sínum forsendum, tvisvar í viku ásamt því að keppa í 3.deild karla.
· Hugarþjálfun, við vorum með samstarf við Haus hugarþjálfun í fyrra, í ár kom Ólafur Stefánsson til okkar og hélt átta vikna námskeið fyrir unglinga með áherslu á andlega þáttinn og hvernig best er að mæta þeim áskorunum sem fylgja afreksíþróttum meðfram námi. Viðtökurnar voru frábærar og verður áframhaldandi samstarf við Ólaf í haust.
· Kúltúrverkefni að fyrirmynd Hilmars Árna Halldórssonar sem körfuknattleiksdeildin gerir að sínu, með sínum áherslum. Ægir Þór Steinarsson landsliðsfyrirliði leiðir það starf.
Körfuknattleiksdeildin stendur frammi fyrir ákveðnum áskorunum, það helsta er aðstöðumál, margir flokkanna eru einfaldlega sprungnir og aðrir þurfa að æfa á slæmum tímum sem óneitanlega ýtir undir brottfall en deildin horfir engu að síður björtum augum til framtíðar.
Mannauður deildarinnar er hennar stærsti styrkleiki. Þar vegur þungt bæði fjöldi iðkenda og ekki síður sá stóri hópur sjálfboðaliða sem leggur sitt af mörkum. Í anda samfélagslegrar samvinnu og fórnfýsi gefa þeir tíma sinn og krafta til starfsins.
Körfuknattleiksdeildin kann þessum aðilum bestu þakkir fyrir þeirra framlag, enda væri starfsemin vart möguleg án þeirra.
MEISTARAFLOKKUR KARLA OG KVENNA
Meistaraflokkur kvenna var áfram byggður upp af ungum uppöldum leikmönnum, sem hafa undanfarin ár sýnt og sannað að starfið í yngri flokkum ber ávöxt.
Deildin var þó hörð, og enduðu þær í neðri hluta deildarinnar þegar henni var skipt upp, og áttu þar hörkuleiki sem skilaði þeim í 7.sætið í deildinni. Í úrslitakeppninni mættu þær gríðarlega sterku liði Njarðvíkur sem hafði sigur 3-0 í einvíginu. Stelpurnar gáfu Njarðvík alltaf leik í þessum þremur leikjum og börðust fram á síðustu stundu í öllum leikjum.
Stelpurnar komust í 8.liða úrslit í VÍS bikarnum 2024-25.
Á tímabili áttum við nokkrar konur viðloðandi A-landsliðshópinn.
Eftir tímabilið hélt Kolbrún María til Þýskalands í atvinnumennsku.
Þjálfari meistaraflokks kvenna var Ólafur Jónas Sigurðarson.
Karlaliðið átti sitt besta ár í körfunni sem skilaði fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í hús í Garðabæ.
Tímabilið gékk vel fyrir sig og fór liðið mjög vel af stað. Í lok tímabilsins dró aðeins af liðinu en skilaði því svo 2 sætinu í deildinni. Úrslitakeppnin var fjörleg og þar vann liðið ÍR 3-1, Grindavík í undanúrslitum 3-2 og svo endaði úrslitaserían við Tindastól í oddaleik á Sauðárkróki þar sem titillinn var tryggður. Liðið spilaði aðeins með tvo erlenda leikmenn og því var liðið borið uppi af íslenskum leikmönnum
Strákarnir komust í undanúrslit í VÍS bikarnum 2024-25
Þjálfari meistaraflokks karla var Baldur Þór Ragnarsson
LOKAORÐ
Körfuboltinn innan Stjörnunnar stendur sterkur og áframhaldandi vöxtur og árangur eitthvað sem byggja verður á fram veginn, nú sem endranær.
Garðbæingar og Stjörnufólk upplifði ótrúlega hluti þegar Íslandsmeistaratitlinum í mfl karla var hampað og má með sanni segja að styrkur Stjörnunnar og sjálfboðaliðans hafi sýnt sig þar.
Allir lögðu sitt fram í óeigingjörnu starfi sem átti ekki síður þátt í að titillinn kom í Garðabæinn.
Sérstaklega langar mig að nefna þakkir til annarra deilda innan Stjörnunnar sem lögðu okkur lið í þessum stóru viðburðum sem leikirnir í Ásgarði voru.
Viðburðaríkt ár að baki og mikil hugur fram veginn.
Fyrir hönd stjórnar, langar mig að þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lagt hafa deildinni til tíma, vinnu og orku. Án ykkar væri þetta ekki hægt. Eins þökkum við starfsfólki Stjörnunnar og Ásgarðs fyrir gott og árangursríkt samstarf.
Einar Karl Birgisson
Formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar.
SKÝRSLA LYFTINGADEILDAR
Óhætt er að segja að áframhaldandi velgengni og uppbygging hafi einkennt starf deildarinnar á árinu 2025 í bæði kraftlyftingum og ólympískum lyftingum. Með þá góðu aðstöðu sem deildin hefur yfir að ráða í Miðgarði hefur tekist að byggja um samstillta liðsheild þar sem iðkendur á öllum aldri og getustigum æfa saman. Ofan á þessum sterka grunni hvílir afreksstarf deildarinnar og þar hefur deildin haldið áfram að styrkja sína stöðu, einkum í klassískum kraftlyftingum. Miðgarður er einnig orðinn miðpunktur landsins í mótahaldi í báðum greinum enda ekkert annað félag sem hefur viðlíka aðstöðu til keppni.
KEPPNISSTARF OG HELSTU AFREK
Á ÍM í ólympískum lyftingum í febrúar átti Stjarnan tvo keppendur og náðu þær að landa einum Íslandsmeistaratitli og einum bronsverðlaunum.
Á EM í klassískum kraftlyftingum í opnum flokki (fullorðinsflokki) sem haldi var í mars í Malaga á Spáni átti Stjarnan þrjá af sjö keppendum í kvennaflokki og tvo af sex keppendum í karlaflokki. Þau voru Lucie Martinsdóttir Stefanikova, Hanna Jóna Sigurjónsdóttir, Þorbjörg Matthíasdóttir, Friðbjörn Bragi Hlynsson og Harrison Asena Kiddaha. Einn af þremur landsliðsþjálfurum kom frá Stjörnunni, Hinrik Pálsson.
Lucie Martinsdóttir Stefanikova vann bronsverðlaun í samanlögðu í 76 kg flokki og náði besta árangri á stigum frá upphafi í klassískum kraftlyftinum á Íslandi. Einnig hlaut hún gullverðlaun í hnébeygju og setti Evrópumet í greininni með 211 kg lyftu.
Íslandsmót unglinga í klassískum kraftlyftingum var haldið í Miðgarði í apríl og voru keppendur 40 talsins.
Á HM í klassískum kraftlyftingum sem haldið var í júní í Chemnitz í Þýskalandi átti Stjarnan þrjá af sex keppendum, þau Lucie Martinsdóttir Stefanikova, Friðbjörn Braga Hlynsson og Harrison Asenda Kiddaha. Lucie vann til silfurverðlauna í hnébeygju í sínum flokki og endaði í 5. sæti í samanlögðu. Einn af þremur þjálfurum kom frá Stjörnunni, Hinrik Pálsson.
Á HM unglinga í klassískum kraftlyftingum sem fram fór í ágúst og september í Kosta Ríka átti Stjarnan fjóra af sex keppendum, Signý Láru Kristinsdóttur, Alvar Loga Helgason, Hinrik Veigar Hinriksson og Sebastiaan Dreyer. Hinrik Pálsson fór sem landsliðsþjálfari í verkefnið.
Norðurlandamót unglinga var haldið í Miðgarði í september. Stjarnan átti fimm keppendur á mótinu og sá deildin um mótshaldið með KRAFT. Mótið tókst gríðarlega vel og ríkti mikil ánægja hjá keppendum og aðstandendum með aðstæður og skipulag.
Stjarnan átti fimm keppendur á Vestur-Evrópumótið í Finnlandi í klassískum kraftlyftingum. Það voru Aron Friðrik Georgsson, Stefán Gunnlaugur Jónsson, Hanna Jóna Sigurjónsdóttir, Alexander Pétur Kristjánsson og Brynjar Smári Elvarsson. Aron og Hanna nældu í silfurverðlaun í samanlögðu í sínum flokkur og Stefán í gullverðlaun í bekkpressu.
Á ÍM í opnum flokki í klassískum kraftlyftingum var Stjarnan stigahæsta liðið annað árið í röð á sterkasta og fjölmennasta móti ársins í kraftlyftingum. Einnig átti félagið stigahæsta karlkyns keppandann á mótinu, Harrison Asena Kiddaha.
Norðurlandamót í ólympískum lyftingum var haldið í Miðgarði í nóvember og gekk mótahaldið allt prýðilega vel fyrir sig.
Á EM unglinga í klassískum kraftlyftingum sem fram fór í Litháen í nóvember og desember átti Stjarnan fjóra af fimm keppendum Íslands á mótinu. Það voru Signý Lára Kristinsdóttir, Benjamín Fanndal Sturluson, Hinrik Veigar Hinriksson og Sebastiaan Dreyer. Sebastiaan vann þar til bronsverðlauna í hnébeygju í sínum flokki með 320 kg lyftu.
Við allt ofangreint má bæta að keppendur deildarinnar náði fjölmörgum Íslandsmeistaratitlum og verðlaunum á mótum ársins. Stjarnan var stigahæsta liðið í karlaflokki á yfir öll mót á árinu í kraftlyftingum. Segja má með nokkrum rökum að deildin sé orðin sú sterkasta á landinu í klassískum kraftlyftingum.
FÉLAGSSTARF OG ÞJÁLFUN
Í lok árs 2025 voru meðlimir deildarinnar sem fyrr yfir 150. Við deildina starfa þrír metnaðarfullir og hæfir þjálfarar:
- Andri Páll Ásgeirsson, kraftlyftingaþjálfari
- Arnór Gauti Haraldsson, lyftingaþjálfari
- Hinrik Pálsson, meistaraflokksþjálfari í kraftlyftingum
Það markmið hefur náðst að skapa með góðri aðstöðu og reynslumiklum og vel menntuðum þjálfurum að skapa einstaka umgjörð fyrir iðkendur og gefur þeim verkfæri til að ná hámarksárangri – hvort sem um er að ræða byrjendur eða landsliðsfólk. Öflugt sjálfboðaliðastarf er unnið við deildina, einkum í kringum mótahald, stjórnarstörf og samfélagsmiðla deildarinnar. Sérstaklega gott samstarf hefur verið við forstöðumann og starfsfólk Miðgarðs og við starfsfólk og yfirvöld Garðabæjar. Við færum þeim bestu þakkir fyrir.
LOKAORÐ OG MARKMIÐ FYRIR ÁRIÐ 2026
- Efla hlut ólympískra lyftinga í starfinu og efla keppnishóp deildarinnar í þeirri grein.
- Halda áfram að auka fjölda iðkenda og auka sýnileika deildarinnar innan íþróttafélagsins og Garðabæjar.
- Tryggja að keppendur deildarinnar haldi áfram að ná framúrskarandi árangri á innlendum mótum.
- Að deildin verði öflugasta félag landsins í klassískum kraftlyftingum.
- Stefnt er að því að deildin eigi fulltrúa í öllum landsliðsverkefnum, bæði í unglingaflokkum og opnum flokki.
Skíni Stjarnan!
Aron Friðrik Georgsson, formaður
Hinrik Pálsson, varaformaður
Alexander Ingi Olsen, ritari
Arna Ösp Gunnarsdóttir, meðstjórnandi
Auður Arna Eyþórsdóttir, meðstjórnandi
SKÝRSLA SUNDDEILDAR
STJÓRN
Stjórn sunddeildar er skipuð eftirtöldum: Sigrún Þorsteinsdóttir, formaður Gunnur Ýr Gunnarsdóttir, ritari og Sandra Björk Björnsdóttir, meðstjórnandi.
ÞJÁLFARAR
Hannes Már Sigurðsson er yfirþjálfari sunddeildar og sér um daglegan rekstur deildarinnar ásamt stjórn. Hannes og Kristján Albert Kristinsson sjá um þjálfun A og B hópa, Sigþór Örn Rúnarsson, Orri Bjarnason og Ágústa Inga Arnarsdóttir voru með C, D, E og barnahópa. Aðstoðarþjálfari var Guðrún Lára Arnarsdóttir. Ágústa Inga sá einnig um sumarstarfið hjá okkur.
IÐKENDUR
Iðkendurhjá deildinni árið 2025 bæði sem sóttu námskeið tímabundið, sumarnámskeið og barnanámskeið og þau börn sem æfðu sund voru í kringum 300. 100 iðkendur æfðu að staðaldri allt árið hjá okkur sem er svipað og síðasta ár, örlítil fjölgun sem um leið setur reksturinn í betra jafnvægi. Kynjahlutfall er nokkuð jafnt.
ÆFINGAR
Æfingahópar voru 8 talsins: A hópur fyrir 13 ára og eldri , B hópur 10-13 ára, C hópur fyrir 8-11 ára, þrír D hópar fyrir 7-9 og 6-8 ára og þrír E hópar fyrir byrjendur 4-7 ára. A hópur æfir núna 6 sinnum í viku, B hópur 3 sinnum og aðrir hópar 2-3 sinnum. Vonandi getum við hafið æfingar í Urriðaholti árið 2026.
MARKMIÐ
Yngri börn: Að börnin læri undirstöðutækni í sundi. Lögð er áhersla á að börnin hafi gaman af, verði örugg í vatninu og líði vel. Einnig er áhersla á að byggja upp samkennd og liðsheild geta hlustað og farið eftir fyrirmælum og sýnt starfsfólki og félögum virðingu og kurteisi.
Eldri börn: Að börnin fái fjölbreytta þjálfun í keppnisgreinum sundsins. Börninfái að spreyta sig í keppni á löggiltum sundmótum með jafnöldrum úr öðrum félögum. Einnig að þau fari sem hópur í æfinga- og keppnisferðir innan- og utanlands sem þroskar þau og eflir. Námskeið: Að bjóða upp á alhliða líkamsrækt í gegnum sundæfingar og sundleikfimi auk þess að efla sundiðkun almennings. Sem og ungbarnasundfyrir þau allra yngstu.
NÁMSKEIÐ
Haldin eru reglulega námskeið fyrir þriggja til sex ára börn í fylgd með foreldrum. Námskeiðin hafa gengið mjög vel og eru orðin fastur liður í starfi sunddeildarinnar og sér Sigþór Örn Rúnarsson alfarið um þau. Einnig er boðið uppá ungbarnasund sem Björg Ósk hefur umsjón með í samstarfi við sunddeildina. Einnig erum við með vatnsleikfimi og leikfimi fyrir barnshafandi konur sem Hrafnhildur Sævarsdóttir og Birna Guðmundsdóttir hafa séð um. Sunddeildin hefur frá stofnun staðið fyrir sumarsundnámskeiðum í Ásgarði og á Álftanesi. Áhersla hefur verið fyrir börn á aldrinum 3ja til 11 ára. Sl. 7 ár höfum við sótt börn af þeim leikskólum sem eru í göngufæri við Ásgarð og Álftaneslaug hefur þetta gefið góða raun og munum við halda þessu áfram. Sundþjálfarinn Ágústa Inga sá um sumarnámskeiðin auk sundmanna úr unglingastarfinu okkar.
STARFIÐ ÁRIÐ 2025
Farið var á fjölmörg mót með krakkana árið 2025 og gekk það mjög vel vel, upp í A er kominn sterkur hópur sundmanna sem voru í B hóp og hafa haldið tryggð við félagið, allt miklir félagar. B hópur er orðin líka mjög sterkur og eru þar krakkar sem munu verða mjög góðir sundmenn.
AÐSTAÐAN
Aðstöðuleysið er enn það sama hér í bæ, því miður. En við þurftum ekki að fella mikið niður í vetur vegna þess að tíðin var bara það góð. Lentum einu sinni í því að þurfa fara uppúr vegna eldinga og einu sinni vegna kulda annað var það ekki. Boðið var uppá æfingar og námskeið í öllum sundlaugum Garðabæjar; Ásgarði, Álftanesi , Mýrinni og Sjálandsskóla. Sundæfingar hjá yngra starfinu eru eingöngu í innilaugunum.
FJÁRMÁLIN
Staða sunddeildar er sterk. Sunddeildin hefur lagt áherslu á að halda fjármálum deildarinnar í jafnvægi. Við viljum vera réttu megin við núllið og þetta hefur verið nokkur barningur undanfarin ár en þetta árið gekk mjög vel með sölu á auglýsingaskiltum til dæmis og fjölgun iðkenda. En við erum bundin í báða skó, þar sem við erum með fjöldatakmarkanir í hópana því plássið er takmarkað og öruggislega er enginn þjálfari sem getur verið einn með mikinn fjölda. Það tekur alltaf smá tíma að stilla af svona nokkuð því það kostar alveg jafnmikið að þjálfa 12 eins og 5. En 8-10 í hóp er svona fullkomin fjöldi í hvern hóp í yngri hópunum en geta verið fleiri þegar þau eru orðin eldri.
FRAMTÍÐIN
Mikilvægt er að halda áfram uppbyggingu sundmannvirkja til að hægt verði að mæta þörfum ólíkra hópa og stækkandi bæjarfélagi til framtíðar og er það enn ósk okkar að einhvern daginn eigum við 25m/50m innisundlaug sambærilega og nágrannabæjarfélög okkar eiga. Eins og í öllu félagsstarfi þá er stuðningur sjálfboðaliða ómetanlegur og starfið væri lítið sem ekkert ef ekki væri fyrir sjálfboðaliða. Fyrst og fremst vonum við að við höldum áfram að byggja upp jákvæða og heilbrigða einstaklinga sem Stjarnan getur verið stolt af. Að lokum þakkar stjórn sunddeildarinnar öllum þeim sem komu að starfinu með einum eða öðrum hætti og starfsfólk mannvirkjanna á heiður skilið fyrir þolinmæði í garð iðkenda.
Skíni Stjarnan!
F.h. sunddeildar Stjörnunnar
Sigrún Þorsteinsdóttir, formaður
STJÖRNUKONUR STJARNAN
Árið 2025 voru Stjörnukonur virkar í félags- og fræðslustarfi með það að markmiði að efla þátttöku kvenna í sjálfboðastarfi og styrkja barna‑ og unglingastarf enn frekar innan Stjörnunnar. Árleg vorganga var haldin sem naut mikillar lukku og þátttaka góð. Lögð var áhersla á tengslamyndun, samveru og góða kynningu á starfinu. Stjörnukonur lögðu sitt af mörkum að vera sýnilegri á samfélagsmiðlum þar sem miðlað var efni frá viðburðum og hvatt til virkrar þátttöku.
Á 80. Umdæmisþingi Rótarý á Íslandi hlutu Stjörnukonur viðurkenningu úr Verkefna‑ og styrktarsjóði Rótarý og fengu styrk að upphæð 600 þúsund krónur. Styrkurinn er ætlaður til að styðja við fræðslu‑ og forvarnarverkefni. Fræðslufyrirlesturinn Taktu pláss með Svavari Knúti sem miðar að því að efla vitund ungra iðkenda og foreldra og sporna gegn félagslegri einangrun var haldin fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara í Miðgarði í nóvember. Frábær þátttaka var hjá iðkendum og augljóst að fræðsla sem þessi hafi komið á góðum tíma. Næsti viðburður Stjörnukvenna verður nú á vormánuðum þegar árleg Stjörnukvennaganga fer af stað og fyrirhugaðir frekari fræðslufyrirlestrar verða á haustmánuðum.
Fh Stjörnukvenna,
Harpa Rós Gísladóttir